2. Pablo Picasso (1881-1973)
Uppboði lokið!
Heads of Rams (Têtes de Béliers)
Gerð: Lithograph, eintak 26/50
Stærð: 24 x 34,1 cm.
Ártal: 1945
Merkt
Um listamanninn
Pablo Picasso var einn af áhrifamestu myndlistarmönnum Evrópu á 20. öldinni. Hann átti stóran þátt í að móta kúbismann sem myndlistarstefnu í Evrópu en vann jafnframt þvert á miðla og stefnur alla sína tíð. Hann vann m.a. í málverkum, höggmyndum, keramik og leikmyndum. Þetta steinþrykk er af stúdíum Picasso af hrútshausum, og er nokkuð raunsæ miðað við þekktustu mótívin hans. Eintak af þessu verki er til í safni MoMa (sjá hér), og var m.a. sýnt á sýningunni „46 nýleg steinþrykk eftir Picasso“, sem haldin var í MoMa árið 1947. Þar voru m.a. sýndar stúdíur myndlistarmannsins, ýmist af fólki eða dýrum, og er bæði hægt að sjá raunsæ og kúbísk verk til sýnis (sjá hér). Í fréttatilkynningu sem send var út í tilefni sýningarinnar er talað um að tilgangur sýningarinnar hafi verið að sýna aðferðir Picasso í „Þróun myndar – tilfærslan frá hinu raunsæja í hið óhlutbundna,“ – að vinna myndefni niður í kúbísk form, að vinna sig úr raunsæum stúdíum yfir í að einfalda þau, „kubba niður“ og einfalda. (sjá hér) Á vef MoMa er fjallað um feril myndlistarmannsins þar sem talað er um að listamaðurinn hafi alltaf streist á móti flokkadráttum í myndlist og var stöðugt að höggva í almennar hugmyndir um línulega þróun í myndlist.
Hæsta boð: 950.000 kr.
*15% uppboðsgjald leggst ofan á hamarshögg
Uppboðssaga
| Tími | Boð | ||
|---|---|---|---|
| 20/10/2025 18:01 | 950.000 kr. | ||
| 20/10/2025 10:36 | 900.000 kr. | ||
| 19/10/2025 22:46 | 850.000 kr. | ||
| 19/10/2025 22:45 | 800.000 kr. | ||
| 19/10/2025 22:45 | 800.000 kr. | ||
| 19/10/2025 22:45 | 750.000 kr. | ||
| 19/10/2025 22:45 | 700.000 kr. | ||
| 19/10/2025 19:10 | 650.000 kr. | ||
| 18/10/2025 14:21 | 600.000 kr. | ||
| 18/10/2025 08:56 | 550.000 kr. | ||
| 18/10/2025 00:46 | 500.000 kr. | ||
| 17/10/2025 23:58 | 450.000 kr. | ||
| 17/10/2025 08:38 | 400.000 kr. | ||
| 16/10/2025 17:21 | 300.000 kr. | ||
| 15/10/2025 09:10 | 250.000 kr. | ||
| 15/10/2025 09:10 | 200.000 kr. | ||
| 13/10/2025 11:32 | 150.000 kr. | ||
| 11/10/2025 23:28 | 100.000 kr. | ||
| 10/10/2025 17:48 | 50.000 kr. | ||
| 06/10/2025 00:00 | Uppboð hafið | ||




